Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2008

Samráð um KriMi boðað

Á fjölmennum fundi í Kennaraháskólanum lýsti Gísli Marteinn Baldursson því yfir að boðað yrði til samráðs borgarinnar, Vegagerðarinnar og íbúa um gatnamót Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar. Íbúar hafa verið að fara fram á að komast að borðinu í meira en 2 ár og því sjálfsagt rétt að segja loksins. Meira á vef Íbúasamtaka 3. hverfis.

Opinn kynningarfundur um KriMi gatnamót

Reykjavíkurborg og Vegagerðin, í samráði við Hverfisráð Hlíða, boða til opins íbúafundar þar sem kynntar verða tillögur að gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar og stokkalausnir á Miklubraut. Fundurinn verður haldinn í Skriðu, sal Kennaraháskólans, miðvikudaginn 16. apríl kl. 17. Dagskrá og nánari upplýsingar á vef Íbúasamtaka 3. hverfis - Hlíðar, Holt og Norðurmýri.

Opinn íbúafundur um KriMi tillögur miðvikudaginn 16. apríl kl. 17

Boðað er til opins borgarafundar miðvikudaginn 16. apríl kl. 17 í hátíðasal Kennaraháskóla Íslands þar sem kynntar verða tillögur borgaryfirvalda á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar.  Dagskrá er í mótun og verður birt þegar nær líður. Fundurinn er haldinn af Reykjavíkurborg og Vegagerðinni, í samráði við íbúasamtök. Nánar á vef Íbúasamtaka 3. hverfis.

Gríðarlegur samfélagskostnaður af völdum mengunar frá umferð

Í Toronto í Kanada hafa yfirvöld reiknað út samfélagslegan kostnað af völdum mengunar frá umferð. Þar er áætlaður árlegur kostnaður vegna ótímabærs dauða 2,2 milljarðar CAD og um 5 milljarðar CAD sé tekið mið af veikindum, fjarveru frá vinnu, sjúkrakostnaði og öðru slíku. Ef þessar tölur eru speglaðar yfir á höfuðborgarsvæðið þar sem um 198.000 manns búa, þá er samfélagslegur kostnaður hér af völdum mengunar frá umferð um 30 milljarðar íslenskra króna. Ársgildi svifryksmengunar í Kanada og á Íslandi af völdum umferðar er mjög svipuð samkvæmt tölum WHO - alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband