Leita í fréttum mbl.is

Ný stjórn og samgöngustefna Hlíða samþykkt á aðalfundir Íbúasamtaka 3. hverfis

Aðalfundur Íbúasamtaka 3. hverfis – Hlíðar, Holt og Norðurmýri var haldinn í Háteigsskóla fimmtudagskvöldið 29. október. Á fundinum voru hefðbundin aðalfundarstörf; skýrsla stjórnar kynnt, reikningar samtakanna lagðir fram til samþykktar og stjórnarkjör. Þar bar helst til tíðinda að Steinnunn Þórhallsdóttir hefur verið kjörin nýr formaður Íbúasamtaka 3. hverfis og koma inn í stjórn með henni 3 nýjir stjórnarmenn. Hægt er að sjá hér á síðunni hverjir sitja í stjórn næsta starfsár samtakanna.

Að afloknum hefðbundum aðalfundarstörfum, kynnti Steinunn Þórhallsdóttir, nýkjörin formaður samtakanna, niðurstöður samráðshóp um betra Miklatún sem Íbúasamtökin tóku þátt í. Þetta samráð náði hámarki með mjög fjölmennum hugmyndafundi á Kjarvalsstöðum sl. vor. Það er einkar ánægjulegt að sjá þá hugarfarsbreytingu sem hefur orðið með að leita til íbúa varðandi samráð og samstarf um að bæta lífsgæði í borginni okkar.

Borin var upp tillaga um samgöngustefnu Hlíða sem mótuð var á Samgönguþingi Hlíða þann 21. október sl. og var hún samþykkt samhljóða. Samgöngustefnan er aðgengileg á vef Íbúasamtaka 3. hverfis og eru íbúar hvattir til að kynna sér hana og ekki síður að taka tillit til hennar í okkar daglega lífi. Næstu skref er að leggja samgöngustefnu Hliða fyrir hverfisráð og í framhaldi að hvetja stofnanir og fyrirtæki í hverfinu að gera slíkt hið sama.

Lýðræðisverkefni borgarstjórnar var kynnt og samþykkt að leggja til grundvallar nokkar hugmyndir sem komu upp á fundinum, auk þeirra 45 atriða sem eru á aðgerðalista íbúasamtakanna frá 2007.

Hlekkir á öll gögn sem voru lögð fram á fundinum eru á vefsíðu Íbúasamtaka 3. hverfis - Hlíðar, Holt og Norðurmýri.

 


Íbúar í Hlíðum boða til aðgerða á Miklubraut miðvikudaginn 21.október kl. 16:30

Íbúar í Hlíðum vilja draga andann rólegir í sínu eigin hverfi og hlífa börnunum við mengunaráhrifum mikillar umferðar á Miklubraut.  Íbúasamtök 3. hverfis - Hlíðar, Holt og Norðurmýri boða til friðsamra aðgerða á sjálfri Miklubraut til að vekja fólk til vitundar um skert lífsgæði Hlíðabúa vegna hávaða- og svifryksmengunar.

Miðvikudaginn 21. október kl. 17.00 boðar Hverfisráð Hlíða til Samgönguþings á Kjarvalsstöðum.  Þing þetta er opið öllum íbúum Hlíða sem fyrst hverfa ætlar að móta samgöngustefnu fyrir hverfið.
Íbúasamtök 3. hverfis - Hlíðar, Holt og Norðurmýri fagna þessu framtaki og hafa skipulagt aðgerðir í tilefni af þessu. Íbúar ætla að safnast saman kl. 16.30 beggja vegna Miklubrautar við gangbrautina við Reykjahlíð á móts við Miklatún, þar sem dreift verður rykgrímum.  Kl. 16:45 munum þeir ganga nokkrum sinnum í rólegheitum yfir Miklubrautina með stóran borða sem meðal annars á stendur:  Sýndu tillitsemi – Hér býr fólk – Minni hávaða – Betra loft.   Borði þessi var notaður í sams konar aðgerðum fyrir 12 árum af íbúum hér í hverfinu og var færður íbúasamtökunum fyrir ári síðan.  Áhyggjur íbúa þá og nú eru hinar sömu, enda eykst umferð á Miklubraut ár frá ári og svifryksmengun fer ítrekað yfir heilsufarsmörk í Hlíðum.

Stjórn Íbúasamtaka 3. hverfis býður íbúum Hlíða á öllum aldri, fjölskyldum og einstaklingum að taka þátt í þessari friðsamlegu athöfn.  Við viljum vekja okkur sjálf og aðra til vitundar um það að það er hægt hafa mikil áhrif á loftgæði borgarinnar með t.d. að ganga og hjóla meira, aka hægar og hætta notkun nagladekkja. Stjórn samtakanna  krefst einnig svara frá borgaryfirvöldum hvaða úrræði þau hafi til að tryggja það að að mengunin við Miklubraut fari ekki oftar yfir heilsufarsmörk á árinu enda hefur fjöldi skipta nú þegar fyllt leyfilegan kvóta samkvæmt reglugerð. Íbúasamtökin hvetja fólk til að mæta með heyrnarhlífar, hjálma og mótmælaspjöld. Fulltrúar frá íbúasamtökum munu stjórna aðgerðum, dreifa rykgrímum til gangandi fólks og bílstjóra og kalla til fjölmiðla.

Stöndum, saman, stöðvum stórfljót bíla á Miklubraut skamma stund – og drögum andann djúpt í Hlíðum.

Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á vef Íbúasamtaka 3. hverfis og má m.a. sjá blaðaúrklippur frá aðgerðunum 1997. 


Samgönguþing Hlíða 21. október á Kjarvalsstöðum

Samgönguþing Hlíða á Kjarvalsstöðum miðvikudaginn 21. október kl. 17 - 19

Hlíðahverfi tekur af skarið í Reykjavík með því að vera fyrst hverfa til að samþykkja samgöngustefnu fyrir hverfið. Íbúar í Hlíðum, Holtum og Norðurmýri eru boðaðir til Samgönguþings Hlíða 2009 þar sem mynduð verður samgöngustefna fyrir 3. hverfi Reykjavíkur. Þingið er á vegum Hverfisráðs Hlíða í samvinnu við Íbúasamtök 3. hverfis.

Hugmyndin að baki samgöngustefnunni er að stuðla að minni kostnaði og bættum umhverfisáhrifum vegna ferða íbúa, hvort sem það er vegna ferða innan hverfis eða út fyrir það.

Dagskrá:

   1. Kynning á Hverfisráði Hlíða
   2. Kynning frá Umhverfis- og samgöngusviði Reykjavíkurborgar
   3. Kynning frá Íbúasamtökum 3. hverfis - Hlíðar, Holt og Norðurmýri
   4. Hópastarf
   5. Niðurstöður

Gert er ráð fyrir svipuðu fyrirkomulagi og reyndist svo vel þegar íbúafundur var um nýtt skipulag á Miklatúni. Þá mættu yfir 100 íbúar á Kjarvalstaði til að leggja á ráðin um framtíðarskipulag garðsins. Nú er tækifæri til að endurtaka leikinn og fjölmenna til að móta fyrst hverfa í Reykjavík samgöngustefnu fyrir heilt hverfi og taka þátt í líflegri stefnumótum í samvinnu við nágranna og aðra íbúa í Hlíðum, Holtum og Norðurmýri.

Nánari upplýsingar má fá á vef Íbúasamtaka 3. hverfis - Hlíðar, Holt og Norðurmýri


Skottmarkaður slær í gegn!

Skottmarkaðurinn sem Íbúasamtök 3. hverfis stóðu fyrir á Hverfishátíð Miðborgar og Hlíða sló svo sannarlega í gegn og myndaðist þar mjög skemmtileg markaðsstemning með hverfislegu yfirbragði. Fólk að spjalla og versla og létu þeir sem buðu fram varning vel af viðskiptum.

Það eru myndir af skottmarkaðinum á vef ÍBS 3

 Skottmarkaður 2009


Hverfahátíð Miðborgar og Hlíða á Miklatúni - laugardaginn 5. sept. kl. 14-16

Hin árlega hverfahátíð Miðborgar og Hlíða verður haldin á Miklatúni 5. september nk. milli kl. 14 og 16. Atriði verða á sviði í porti Kjarvalsstaða, dagkrá inni í húsinu, atriði á Miklatúni fyrir framan Kjarvalsstaði.

Skottmarkaður verður á vegum Íbúasamtaka III. hverfis, tengiliður er Steinunn  Þórhallsdóttir s. 862-3242. Allir sem hafa áhuga á að fá stæði fyrir bílinn sinn á skottmarkaðnum geta skráð sig með tölvupósti í netfang: skottmarkadur@gmail.com . Þátttaka er ókeypis.

Íbúasamtökin hvetja einstaklinga jafnt sem fjölskyldur, nemendaráð, foreldrafélög, íþróttafélög, ömmur og afa til að taka þátt í að skapa skemmtilega stemningu í hverfinu.  Það er einfalt mál að fara í geymsluna og raða því í skottið á bílnum sem gott væri að losna við, leggja á stæðinu við Kjarvalsstaði, og breyta bílnum sínum í sölubás í tvo klukkutíma. Nú eða selja föndrið frá því í fyrra, heimabaksturinn, sultuna eða hvað sem er.

Fjölmennum á Hverfahátíð 2009 á Miklatúni laugardaginn 5. september n.k.

Dagkrá og allar upplýsingar má nálgast á vef Íbúasamtaka 3. hverfis.

hverfahatid_vefur_topsida.jpg


Góð reynsla af samráði við íbúa

Miðvikudaginn 6. maí komu nær 100 manns saman á Kjarvalsstöðum til að taka þátt í hugmyndavinnu um framtíðarskipulag á Miklatúni. Þessi mikli áhugi er enn eitt merki um að íbúar í Reykjavík hafa áhuga á taka þátt í að móta sitt nær umhverfi og að fólki er ekki alveg sama um hvernig það sé unnið.

Samráð um skipulag og nýtingu Miklatúns hefur verið lengi á dagskrá Íbúasamtaka 3. hverfis og það var því ánægjulegt að slíkur fundur skyldi haldinn. Og með hann var mikil ánægja, bæði hjá þátttakendum og skipuleggjendum.

Þetta er annað samráðið sem Íbúasamtökin taka þátt í á innan við einu ári og það er greinilegt að hinn góði árangur sem af slíku starfi er orðin hvatning til að taka það upp í tengslum við fleiri mál.

Hægt er að lesa um samráðsfund á Kjarvalsstöðum á vefsíðu ÍBS 3.


Loksins, loksins ...

Íbúasamtök 3. hverfis hafa löngum ýtt á eftir áætlun sem þessari og aðgerða gegn svifryki.

Sjá nánar á síðu ÍBS3 - http://www.hlidar.com


mbl.is Áætlun gegn svifryksmengun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hlíðarnar sameinaðar - loksins

Haustið 2005 tóku nokkrir íbúar í Hlíðahverfi sig saman til að vinna að framgangi þess að sameina Hlíðarnar með því að setja Miklubraut í lokaðan niðurgrafinn stokk alla leið í gegnum hverfið. Þetta mál varð síðan eitt af megin málum Íbúasamtaka 3. hverfis sem voru stofnuð seinna sama ár. Þessi ákvörðun borgarráðs markar tímamót í þeirri baráttu og hún er mikið fagnaðarefni. Nú þarf að fylgja eftir hönnun og koma lausninni í umhverfismat.

Það merkilega er að sú lausn sem náðist almenn samstaða og sátt um leysir vandamálin sem þarna eru fyrir alla, jafnt íbúa og bílaumferð og kostar að auki töluvert minna en þau tröllamannvirki sem áður voru á dagskrá.

Hægt er að fræðast um feril málsins á vefsíðu Íbúasamtaka 3. hverfis - Hlíðar, Holt og Norðurmýri


mbl.is Hætt við þriggja hæða mislæg gatnamót
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hlíðarnar loksins sameinaðar?

Þann 5. nóvember 2008 var samráðshópi um framkvæmdir við Miklubraut - Kringlumýrarbraut slitið. Í lok fundar var samþykkt niðurstaða sem gengur út á það að lögð verður áhersla á stokk á Miklubraut frá Snorrabraut / Rauðarárstíg austur fyrir gatnamót við Kringlumýrarbraut. Aðgerðum á Kringlumýrarbraut verður frestað en gert er ráð fyrir að hægt verði í framtíðinni að leggja hana undir gatnamótin í jarðgöngum síðar.

Hin risavöxnu þriggja hæða gatnamót sem voru í fyrri tillögu hafa verið slegin af og í staðinn mun Miklabrautin verða lögð undir gatnamótin sem áfram verða í núverandi plani.

Aðal gangnamunnar verða við Snorrabraut og til móts við Kringluna og í niðurstöðu samráðshópsins er sérstaklega kveðið á að gert verði ráð fyrir rólegri hverfisumferð á yfirborðinu þar sem sérstaklega verði tekið tillit til gangandi og hjólandi vegfarenda. Auk þess verði mengunarvarnir í stokkunum sérstaklega skoðaðar með það fyrir augum að mengun og hávaði við gangnamuna verði eins lítil og mögulegt er.

Gert er ráð fyrir að einnar akreinar upp og niðurkeyrslur við stokkinn verði á Miklubraut til móts við gamla Tónabæ en þar var áður gert ráð fyrir stórum 6 akreina gangnamunna.

Í kjölfarið á þessari samþykkt hefst vinna í borgarkerfinu að undirbúningi að hönnun og umhverfismati og þá munu nákvæmar tillögur líta dagsins ljós.

Ef litið er til þess sem fulltrúar Íbúasamtakanna hafa farið fram með, er óhætt að fullyrða að samþykktin í dag mun leiða til þess að líf og lífsgæði íbúa í Hlíðum stórbatna til framtíðar og Hlíðarnar verði loksins sameinaðar. Þetta er mjög mikilvægur áfangi sem náðist á þeirri leið í dag. Til hamingju íbúar í Hlíðum!

Meira á heimasíðu Íbúasamtaka 3. hverfis


Gísli Marteinn Baldursson mætir á aðalfund Íbúasamtaka 3. hverfis

Að afloknum aðalfundarstörfum mun Gísli Marteinn fara í gegnum samráðsferilinn sem hefur verið í gangi vegna gatnamóta Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar, ásamt stokkalausnum á Miklubraut.

Nánari upplýsingar á síðu Íbúasamtaka 3. hverfis - Hlíðar, Holt og Norðurmýri - www.hlidar.com


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband